Tíðni
Á höfuðborgarsvæðinu fara flestar leiðir á 15 mínútna fresti á annatíma en utan annatíma fara flestar leiðir á 30 mínútna fresti.
Leið 1 ekur á 10 mínútna fresti á annatíma og 15 mínútna þess fyrir utan á dagtíma virka daga.
Leið 6 ekur á 15 mínútna fresti á dagtíma virka daga.
Vagnarnir byrja að ganga frá ca. kl. 6:30 á morgnana virka daga, ca. kl. 7:30 laugardaga og ca. kl. 9:30 sunnudaga. Vagnarnir ganga alla daga vikunnar framm að miðnætti (00:00)
Á rauðum dögum er ekið eins og á sunnudögum og á aðfangadag og gamlársdag gengurr strætó þangað til kl. 15. Á höfuðborgarsvæðinu er ekið á jóladag og nýársdag eins og á sunnudegi en utanbæjar er enginn akstur á jóladag og nýársdag.

Tengileiðir
Á höfuðborgarsvæðinu eru fimm skiptistöðvar þar sem tímasetningar vagna eru samstilltar þannig að vagnarnir séu þar á svipuðum tíma. Þær stöðvar eru Fjörður, Ásgarður, Hamraborg, Mjódd og Ártún, og það kallast „púlsakerfi“ þar sem allir vagnar leggja af stað frá stöðinni á svipuðum tíma. Aðrar skiptistöðvar eins og Hlemmur, Spöngin og Háholt, eru stórar skiptistöðvar og mikilvægar í kerfinu en þar eru tengingar milli vagna ekki sérlega skipulagðar.
Leiðakerfisbreytingar
Leiðakerfisbreytingar eru oftast gerðar tvisvar til þrisvar á ári. Þegar breytingar eru gerðar er hugsað útí ábendingar frá farþegum, vagnstjórum, sveitarfélögum ásamt því að skoðuð eru GPS gögn frá vögnunum. Hver tillaga fyrir sig er metin með tilliti til mismunandi þátta og er haft samráð við helstu hagsmunaaðila.